:: garpur ::

Jæja...
:: velkomin á garpur
[::..Ég..::]
bæta mér á msn
:: hafðu samband
:: skrifaðu í gestabókina
[::..Tenglar..::]
:: Hallvarður súgandi
:: bb.is
:: Óðinn Freyr
:: hugi
:: tilveran
:: helvítis
:: batman
[::.. Bloggarar ..::]
:: Lyftarabretti
:: Ólöf systir
:: krissa systir
:: Svan
:: fiffi
:: Tinna "dóttirin"
:: Hrund
:: geimVEIRA
:: Iðunn
:: Moon
:: Steinka&Solla
:: Rúnar Karvel
[::..annað..::]
:: Regnbogabörn
:: Gegn einelti
[::..IceBlog..::]
iCeBloG
Vefhringur
< ? iCeBloG # >
[::..Gamla bloggið..::]

:: þriðjudagur, nóvember 22 ::

Jæja.. verð víst að setja inn heimskulegaprófiðánetinu í tilefni þess að það er langt síðan ég setti solleis inn... ekki það að ég er ekkert sammála þessu


Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða tröll ert þú?
:: J þriðjudagur, nóvember 22, 2005 [+]
...
Jæja... ég segi nú bara enn og aftur VÁ ég get bloggað, þetta helv!$#% drasl hjá blegger er búið að vera bilað síðan ég veit ekki hvenær!!! jú síðan ég bloggaði síðast....

Og boj og boj það er alveg þvílíkt margt búið að gerast síðan þá!! fyrir þá sem ekki vita það þá ég eigum við hjónaleysin von á litlu kríli í janúarbyrjun :c) og að sjálfsögðu erum við í skýjunum yfir því... og núna er bara beðið eftir því að jólin klárist...

annars er lítið að ske akkúrat núna og ætla mér að blogga aftur mjög fljótlega... það er að segja ef blogger beilar ekki á mig aftur!!
:: J þriðjudagur, nóvember 22, 2005 [+]
...
:: sunnudagur, ágúst 7 ::
Jæja... nú er ansi langt síðan maður malaði hérna inni síðast, svosem margt og mikið sem hefur gerst síðan :c) er td búin að fara suður í borg óttans, fór um verslunarmannahelgina, verslaði slatta :cD fór í bíó, borðaði helling af sukkfæði, fór í bláa lónið, og kallinn fór á innipúkann.

Talandi um bláa lónið, ég hef farið á hverju ári, en vá hvað þetta er orðið ÓGEÐSLEGT!! í alvörunni talað, hef aldrei upplifað þetta svona þarna, ekki einu sinni á gamla staðnum!! bara svo ég nefni eitthvað þá mættum við þarna snemma um morguninn, skápurinn sem ég fékk var drullu skítugur, ásamt öllum skápunum þarna, ég fór í sturtu eins og reglur gera ráð fyrir og AUJJJ við fórum í búningsklefana á efri hæðinni og þeir voru ekki mikið notaðir þegar við komum, því jú við komum snemma, allavega ég kveikti á sturtunni, og gaus þá ekki þessi viðbjóðslega HLANDLYKT af sturtuhenginu!!
svo virðist vera að baðgestum sé allt leyfilegt þarna!! þú mátt fara með bjór í lónið eða aðra drykkjavörur, enda var maður að labba endalaust á plastglös ofaní lóninu, og annað sem fór virkilega í pirrurnar á mér að fólk mátti vera með myndavélar og vídeókamerur þarna eins og ekkert væri athugavert við það, ég var sko ekkert sátt við það að einhverjir helvítis bretar voru að elta mig og hlæja að mér með helvítis kameruna, ég borgaði jafn mikið og aðrir þarna og fyrir hvað jú fyrir að vera aðhlátursefni fyrir einhverja útlendinga... á öllum öðrum baðstöðum hér á Íslandi er BANNAÐ að vera með svona dót á almenningsbaðstöðum!! og sumstaðar er gengið svo langt að bannað er að vera með gsm síma inná baðstöðunum, jú vegna þess að nútímasímar eru með myndavél.
Þegar við svo fórum uppúr lóninu, í stiganum upp í búningherberginu tók á móti okkur þessi jú yndislega umrædda hlandlykt... því jú sturturnar eru búnar að vera í gangi AUJJJ... fyrir utan að ég komst ekki á salernið því að það hirti enginn starfsmaður um það og það flæddi pappír um allt!! ekki geðslegt...

Bláa Lónið er ein af náttúruperlum Íslands og að mínu mati einn af fallegri stöðum hér á Íslandi, og að umsjónamenn þessa annars ágæta baðstaðar geti látið þetta drabbast svona niður er að mínu mati ógeðslegt og ætti þetta þetta fólk að fara að hysja upp um sig buxurnar að laga þessi mál, afkoma bláa lónsins er háð því að ferðamaðurinn láti sjá sig, en ef svona subbuskapur ætlar að verða aðalsmerki bláa lónsins þá verður það fljótt að spyrjast út :c(

Ég gæti svosem haldið áfram að tuða um bláa lónið, en finnst þetta bara ágætt, og veit að með sjálfri mér að það líður mjög langur tími þangað til að ég heimsækji þennan stað aftur :c(
:: J sunnudagur, ágúst 07, 2005 [+]
...
:: fimmtudagur, júlí 14 ::
Jæja... ég fann söguna af Gutta... 30 árum síðar...

Gutti þrjátíu árum síðar
Senn þið heyrið sögu flutta
sem þó allir hafa frétt.
Reyndar þolið þið ei Gutta,
það er alveg rétt.

Moldfullur er ætíð maður sá,
milli bara ráfar hann á kvöldin til og frá.
Konu sinni unir aldrei hjá
og hann heldur fram hjá henni, já, já, svei mér þá.

Allan daginn út um bæinn
eilíft heyrist hennar breim:
Gutti, Gutti, Gutti, Gutti,
Gutti, komdu heim.

Eftir tvo, þrjá, átta stutta
alltaf lendir hann í slag.
Kvalin mjög er kona Gutta,
kveinar sérhvern dag:

Hvað varst þú að gera, Gutti minn?
Gleðikonan, hirti'hún af þér allan peninginn?
Rándýrt er að flengja ræfilinn.
Reifstu svona kjaft við nýja yfirmanninn þinn?

Þú skalt ekki þjóra, Gutti.
Þú þolir ekki meira svall.
Almáttugur, enn sú mæða
að eiga svona karl!

Gutti aldrei gegnir þessu,
með Gretti Sig. hann fer á bar.
Laminn var af trukkalessu
á laugardaginn var.

Alveg hroðalega'í dag hann datt.
Drottinn minn og hjónabandið illa'á vegi statt.
Þar er allt í klessu, er það satt?
Ójá, því er ver og miður, þetta er svo gratt.

Ævi hans er alla daga
ekkert nema skakkaföll.
Enn er þessi angurssaga
ekki næstum öll.
:: J fimmtudagur, júlí 14, 2005 [+]
...
:: miðvikudagur, júlí 6 ::
Jæja... Alltaf brjálað að gera hjá á mér þessum tíma eins og alltaf... sælan rétt að skríða í hlað og hallvarðsfólk orðið pínku stressað, enda genaralprufa í kvöld og frumsýning á morgun :c) ekki það að ég þurfi eitthvað að kvarta ég hef svosem aldrei gert eins lítið og ég hef gert í ár, en samt hef ég gert helling þó, eiginlega eins og ég vill bara hafa það... en ég geri einhvernvegin ráð fyrir því að ári þá mun ég lítið sem ekkert starfa með mínu ástkæra leikfélagi... d:c(c:p dadara

Annars er ég komin í sumarfrí, og ég veit ekkert hvernig ég á að haga mér... kallinn er ekki komin í frí og er reyndar útá sjó þessa stundina og ég veit ekkert hvenær hann kemur heim... og hvort hann komi þá yfirhöfuð heim fyrir sælu :c( svo á hann lítið frí og byrjar mikið seinna en ég svo að við förum svosem ekkert mikið, ekki það að það er alveg fínt að vera heima líka, við erum búin að fara á eitt ættarmót sem er alveg nóg fyrir mig... nema mig langar nú samt að fara í borg óttans og missa mig í búðarrápi... ég hef nú sérstaka ástæðu núna...........

já svo eru systur mínar á leiðinni vestur akkúrat núna, ásamt fylgdarliði... svo kanski ég bara haldi áfram að þrífa...
:: J miðvikudagur, júlí 06, 2005 [+]
...
:: sunnudagur, júní 12 ::
Jæja... ég tók aðeins til í linkunum mínum... sumir orðnir virkilega gamlir og úreltir, bætti svo tinnu og rúnari karvel við... endilega kíkja á þau :c)
:: J sunnudagur, júní 12, 2005 [+]
...
Jæja...Vá ég get bloggað!!!! hef ekki getað komist inná bloggsvæðið mitt hjá blogger síðan á áramótum, og núna altíeinu kemst ég inn... og verður nú sko bloggað ;c)

það er svosem margt búið að gerast hjá mér síðasta hálfa árið, er búin að vera rosalega dugleg í skólanum, alveg satt! tókst meira að segja að landa þremur tíum, tvær fyrir verkefni og einni í lokaverefni :c) ég hef aldrei áður á ævi minni fengið tíu, enda er meðaleinkun mín fyrir sl tvær annir 9 sem ég er alveg glimrandi ánægð með :c)

svo er ég nottla eins og vanalega rosalega ánægð með það að veturinn er búin og sumarið komið, en vildi samt að sú gula sýndi sig meira... en það hlýtur að koma að því...

í augnablikinu hef ég svosem ekkert meira að segja... hér allavega :c) en ég ætla ekki að láta líða eins langt aftur næst... það er að segja ef blogger beilar mig ekki aftur
:: J sunnudagur, júní 12, 2005 [+]
...
:: fimmtudagur, desember 30 ::
Jæja... Fjóla!! frábært að þú ert komin í samband við umheima aftur... varðandi klúbbinn þá ætlaði ég að halda klúbb tveimur vikum fyrir jól, en þar sem það hentaði ekki tveimur úr klúbbnum (ég nefni engin nöfn) þá frestaðist það... en kallinn minn fer suður fljótlega... svo það er spurning með næstu helgi ;c)

:: J fimmtudagur, desember 30, 2004 [+]
...
Jæja... Gleðilega hátíð... jájá ég veit að ég er eitthvað sein í þessu og ekki búin að blogga í um 5 vikur... en hvað um það, batnandi konum best að lifa ;c)

Við skötuhjú erum búin að vera að klára breytingarnar á heimilinu okkar (sem við byrjuðum nótabene á í sumar!!) og varð tölvuherbergið mitt fyrir barðinu á okkur að þessu sinni, svo og var tölvuherbergið mitt notað sem gestaherbergi yfir jólin... svo ég hef kanski smá afsökun á þessu bloggleysi...

en það er alveg merkilegt hvað internetfíknin rennur fljótt af manni, og maður furðufljótt ekki háður því að kíkja á netið og á tölvupóstinn... sem ég hef ekki kíkt á í tvær vikur... og ekki einu sinni kíkt á bb í þessar tvær vikur

Ég og mínir höfðum það rosalega gott yfir jólin, verst bara hvað jólafríið var stutt... svo varð ég tuttugu&átta á aðfangardag, og það lennti nú ekkert illa á mér... en mig kvíður fyrir eftir næstu tveimur... hvað þá því þarnæsta... svo að sjálfsögðu þurfti ég að næla mér í smá pest eftir jólin :c( en hún stóð nú bara yfir í sólarhring... svo ég er nokkuð fegin...

svo er nú stefnan tekin á að djamma annað kvöld... en ekki lýst mér nú vel á veðurspánna... það á víst ekki að vera gott skotveður :c( en maður bæti sér það kanski upp í drykkju... hver veit...

Takk fyrir liðið ár

Kveðja JÓ

:: J fimmtudagur, desember 30, 2004 [+]
...
:: laugardagur, nóvember 20 ::
Jæja... Þá er ædol þessa föstudagskvölds lokið... ég var ekkert smá svekkt með þennan þátt, þær bestu komust áfram... allir hinir voru lélegir... allavega mín skoðun! Ég bjóst td meira af Davíð Smára, bjóst við því að hann yrði eitthvað annað en risastórt barn þarna á sviðinu... æji hann hefði alveg getað tekið gagngrýninni á aðeins þroskaðari hátt... en maður veit aldrei hvernig óöryggi brýst út... ég ætti nú að vita það, þar sem ég hef umgengist svoleiðis fólk... samt fannst mér dómnefndin alveg búin að ákveða strax í byrjun hverjir ættu að komast áfram, jú Brynja bar af keppendum, en kommon gefa hinum séns... og hvað var málið hjá Bubba og Todda að segja að Lísa kæmist áfram!! hvað var það?? bara af því að hún var ljóshærð gella með stór brjóst?? allavega hrósuðu þeir henni ekkert fyrir sönginn!! allavega hrósaði Toddi Valgerði lang mest og Bubbi sagði að hún hafi verið lang best af því sem komið var...svo bjuggust þeir ekki við henni áfram... díses... sumir meika allaveg engann sens... og hana núhh!!

Annars á ég tvær vikur eftir að skólanum og mér er aðeins farið að kvíða fyrir prófunum :c( ég veit að heilbrigðistfr prófið á eftir að verða erfitt!! við erum búin að fara svo hratt yfir síðan á hlutaprófinu, og ég held að ég hafi meðtekið sirka tuttugu prósent af því sem fór fram í tímanum... fyrir utan að kennarinn lokaði nánast á allar umræður í tíma, svo maður nær innihaldinu kanski alveg... ekki það ég mætti alveg vera duglegri að lesa... en kennarinn má nú eiga það að hún lætur okkur fá áhersluatriði fyrir prófið, sem er frábært!! en mig grunar nú að ég verði bara með páfagaukslærdóm fyrir prófið... mér kvíður nú líka fyrir sálfræðinni... en þetta er nú ekki mikið sem þarf að bæta við síðan á hlutprófinu... en svona í alvörunni afhverju er ég að kvarta?!? ég fer í tvö próf!! við tökum ekki próf í fjandans faginu (FJF 103)... svo hvað er ég að kvarta...




:: J laugardagur, nóvember 20, 2004 [+]
...
:: fimmtudagur, nóvember 18 ::
Jæja... Núna situr maður bara í menntaskólanum og bíður þess að kennsla hefjist... og ég ákvað að blogga fyrst ég hefði nú ekkert betra að gera...

Ég gerði stórmerkilega uppgötvun í gær!! ég get horft á skjá 1 í gegnum netið!! og það sem meira er ég get tengt tölvuna við sjónvarpið!!! og bara fín gæði... og ég er ekki að gera þetta á kostnað annarra... get ekki farið nánar út í það hér, en mér blöskraði !! það er allavega ágætt að sumir geta haft samvisku (thja eða samviskuleysi) til þess að misnota aðstöðu sína til þess að hafa þessa ágætu sjónvarpstöð á kostnað annarra... og hana nú!! ég varð satt best að segja reið... en ekki meira um það!!!

annars er ég bara í fínu formi, og það sem ég talaði um síðast, vegmótin mín og allt það er bara farin góðann farveg og allt er í stakasta lagi :c) óþolandi að þurfa alltaf að tala undir rós :c)

er að vonast til þess að fá úr verkefni sem við gerðum nokkrar í "fjandans faginu" í dag... úff ekkert smá erfitt, við vorum svo innilega ekki á því að hafa það af að klára þetta... en það hafðist nú samt þó á endanum... en er nú ekki viss um að einkuninn verði neitt glæsileg... en vonandi kemur þetta í dag... jæja farin í tíma

:: J fimmtudagur, nóvember 18, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, nóvember 7 ::
Jæja... ég fékk svolítið athyglisverðan póst um daginn... og svei mér þá ég held að ég geri það er lagt til í póstinum... en hér kemur hann :


Olíufélögin stálu af okkur peningum í mörg ár. Það liggur skýrt fyrir í niðurstöðum samkeppnisstofnunar.
Þeir viðurkenna það - en segja að málið sé fyrnt.
Þeir vilja ekki borga sektir eða skaðabætur- vegna þess að það er svo langt síðan þeir stálu frá okkur.

Við getum svarað fyrir okkur.
Það þýðir ekkert að hafa bensínlausan dag. Það er bara rugl því þá verslum við bara meira á morgun.
Við refsum þeim með buddunni og kaupum BARA BENSÍN!
Alveg þangað til þeir hætta að röfla og borga sínar sektir og skammast sín - þá kaupum við BARA BENSÍN.
Ekki sígarettur, ekki pylsur, ekki hreinsiefni, leikföng, nammi, mat, hanska, grill né neitt annað, við kaupum allt slíkt annars staðar.
Hjá olíufélögunum kaupum við BARA BENSÍN! EKKERT ANNAÐ! Þeir finna fyrir því.

Dreifðu þessu á þína vini - og stattu við það að kaupa BARA BENSÍN.
Næst þegar þú freistast til þess að kaupa eitthvað annað á bensínstöð en BARA BENSÍN þá sannar þú orð markaðsstjóra OLÍS sem sagði í samráðinu "Fólk er fífl".

Vilt þú láta hafa þig af fífli? Ef ekki þá kaupir þú BARA BENSÍN.

Almenningur

Félögin sem um ræðir eru:
Skeljungur, OLÍS og ESSO


:: J sunnudagur, nóvember 07, 2004 [+]
...
:: laugardagur, nóvember 6 ::
Jæja... það er nú það, nú er komin helgi aftur... mér finnst alltaf vera helgi!! það verða sko komnir páskar áður en maður veit af!!! ekki það mér finnst páskarnir vera skemmtilegasta hátíðin, jólin eru jú alveg ágæt... en páskarnir eru samt skemmtilegir... kanski vegna þess að maður er alveg pottþétt með fimm daga frí... en eins og jólin eru núna þá er þetta helgarfrí... já og plús hálfur dagur... ekki alveg að gera sig sko...

Svo er nú alveg ótrúlegt hverngi hlutirnir æxlast... síðustu helgi tók ég ákvörðun... mjög stóra ákvörðun... ákvörðun sem ég var ekki sátt við, en náði ekki að framkvæma hana því forsendur breyttust... það er svo skrítið hvernig þetta er, hvernig hlutirnir alltaf einhvernveginn bjargast... en ég er sátt, og svei mér þá mér líður líka mikið betur... leiðinlegt að geta ekki skýrt þetta betur út... en svona er þetta víst...

já og svo skólinn, mér gengur bara vel, er á fullu í verkefnavinnu þessa dagana, var að fá einkun fyrir eitt verkefni, er ekkert smá ánægð, ég gerði verkefni um ofvirkni með athyglisbrest og fékk 9 fyrir... mjög ánægð... var svo að skila einu hópverkefni í vikunni... skila svo öðru hópverkefni í þærri næstu... og svo einu stóru verkefni í lok nóvember... en í því verkefni ætla ég að fjalla um kvennaathvarfið, mjög verðug verkefni að fjalla um...

hehe svo ein pæling hjá mér... mig langar svo ofboðslega að prófa að vera köttur í einn dag!! ég er ekkert að djóka, væri sko alveg til í að prófa... en vera samt sko með mína meðvitund... pæliði í því að geta bara verið alveg eins og þú vilt, þú þarft ekkert að hugsa um vinnu eða aðrar skyldur, sefur þegar þú vilt, étur þegar þú vilt, ferð út á næturdjamm eins og þú fengir borgða fyrir það, já ég er sko alvegt til í að vera köttur.... í einn dag! :c)

:: J laugardagur, nóvember 06, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, október 31 ::
Jæja... þá er ég búin að fá útúr öllum prófunum, ég fékk 9,1 í heilbrigðisfræðinni... og ég er bara nokkuð sátt við það :c) og þá er þessum prófstússi lokið í bili... allavega frammá miðjan nóvember...

Svo finnst mér ég standa á smá gatnamótum þessa dagana... á maður að halda áfram að taka við kjaftæði og rugli sem viðgengst... eða á maður að rísa upp og gera eitthvað í málunum!! málið er bara að það er búið að reyna að gera eitthvað í þessu en það gerist bara ekki neitt!! hlutirnir eru bara eins... lagast kanski í nokkrar vikur, en fer svo aftur í sama farið... og málið er að ég er búin að fá mig fullsadda... og núna er ég með augun og eyru opinn...

annars var unnar að koma heim áðan... og verð bara að segja að ég er nokkuð fegin... mér var nú farið að leiðast töluvert... og svo er ég líka ekkert smá glöð yfir að þetta var síðasta lota á þessu misseri :c)

:: J sunnudagur, október 31, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, október 24 ::
Jæja... Ég kom mér alveg gjörsamlega á óvart!!! var að fá niðurstöðuna útúr hlutaprófinu í sál123, og mín sem var skvo alveg viss um fá 5, en var að vonast að fá 6... svo þegar kennarinn rétti mér prófið þurfti ég að fara yfir nafnið aftur bara svona til að vera viss um að þetta væri nú örugglega mitt próf!! en það var víst rétt... og mín fékk skvo 8,7 fyrir prófið!!! er sko ekkert smá glöð með það... ég held að bekkurinn hafi komið kennaranum rosalega á óvart, ég held að hann hafi ekki búist við miklu af okkur, ég fæ svo að vita niðurstöðuna úr heilbrigðisfræðinni á morgun... en ég hef einhvernveginn engar áhyggjur af því... er bara spennt að fá að vita niðurstöðuna...

annars er bara ósköp lítið að ske hjá mér, bara vinná, skóli, sofa, það það svo venjulega... kallinn minn er að fara í lotu næstu helgi... svo kanski held ég bara föndurklúbb þá, aldrei að vita :c)

:: J sunnudagur, október 24, 2004 [+]
...
:: föstudagur, október 15 ::
Jæja... Já nú eru hlutaprófun lokið... í bili allavega, mánuður í þau næstu :c) mér gekk rosalega vel í heilbrigðisfræðinni, og ég er að vonast til að fá átta... eða jafnvel hærra, en það kemur víst í ljós... svo er það sálfræðin... púff... ég veit að ég fæ allavega fimm... allt þar fyrir ofan er frábært!! frekar erfitt að muna allar þessar þessar kenningar... ég náfi að krafsa mig einhvernveginn út úr þessu... og svaraði öllum spurningunum... veit reyndar um tvær allavega sem voru rangar hjá mér :c( jæjajæja... fæ samt ekki vita um niðurstöðina í sál fyrr en á miðvikudag... og ekki í heilbfr fyrr en eftir mánudag í þarnæstu viku...

annars er búið bara að vera meinhægt... bara próflesturinn... já og svo vinnan... er svo að fara á aukavakt aðfararnótt sunnudags, kíður pínku fyrir því þar sem þetta er tólf tíma vakt... en ég hlýt að vaka það af mér... ætla að reyna að vaka eins og ég get í kvöld og sofa eins og ég get á morgun.... ef ég þekki mig rétt þá verð ég sofnuð fyrir miðnætti, ætla nú samt að vinna sálfræðiverkefnið mitt, sem átti að vera fyrirlestur en var breytt í skilaverkefni, í kvöld... ég er að fjalla um nokkuð spennandi verkefni... eða ofvirkni með athyglisbrest... þar sem ég þekki til nokkurra sem er með svoleiðis, langaði mér að fræðast svolítið um þetta... kemst alveg örugglega af fullt sem ég hafði skvo ekki hugmynd um!!

svo var systir hans unnars að koma, sú sem býr fyrir austan, alveg óvænt... rosalega gaman að hitta þau :c) bara leiðinlegt að þau þurfi að fara á morgun... þau ætluðu að fara á sunnudag, en veðurspáin er ekki góð fyrir hann... og ekki gott að ferðast svona langt með tvo smákrakka, hvað þá í vondu veðri... en þetta var óvænt og skemmtilegt...

jæja verkefni hér æ kom....

:: J föstudagur, október 15, 2004 [+]
...
:: mánudagur, október 4 ::
Jæja... ég held að ég hafi þetta átómatískt... úff hvað er langt síðan ég bloggaði!! mér finnst ég alltaf vera svo upptekin... við hvað veit ég ekki alveg... en svona er nú það jújú ég er í skóla... en vá samt hvað ég er löt við hann... ekki það ég veit ekki alveg hvernig ég á að hafa mig í að byrja... ég á að flytja fyrirlestur um ofvirkni með athyglisbrest... og ég er búin að vita að ég á að gera þetta núna í tvær vikur, en er ég byrjuð ónei!! reyndar á ég ekki að flytja fyrirlesturinn fyrr en eftir tvær vikur, því ég ákvað að raða mér með síðustu, en í vikunni á undan fyrirlestrinum þá fer ég í hlutapróf í sama fagi (er strax komin með magaverk bæði fyrir prófið og fyrirlesturinn) , eða sálfræði 123... og afhverju byrjaði ég ekki á þessu síðustu helgi... eins og ég var búin að ákveða... hef ekki hugmynd um það!! en reyndar fór ég á smá námskeið um námstækni... sem var sérhannað fyrir fólk sem hefur ekki verið leeeengi í skóla, og ég held að ég hafi lært mikið á því... jæja þá er bara að bretta upp ermar...

Já og haha stundum get ég verið svo kvikindisleg... ég var að frétta af konunni sem var alltaf að bera það út að ég væri ólétt... skvo núna er hún ólétt... og ekki nema hvað, ólétt af tvíburum!!! vá talandi um karma :c) hhmmm annars ætti hún að vera með tíbura (tíu börn)miðað við fjöldan af sögunum um mig í gegnum árin.... ;c) allavega hlakkaði ekkert smá í mér!!

já svo komum við föndrurnar aftur saman, eftir mjög langt frí, ég vona allavega að við verðum alveg ofboðslega duglegar í vetur!! þó það væri nú ekki nema bara að hittast!!

... annars er orðið ansi kuldalegt hér að sjá, alveg hvítt niður hlíðarnar, og hálka þegar ég var að keyra í morgun, fékk alveg snilldarhugmund þegar ég var að keyra heim, fékk pabba til að skutla mér með tvö af gömlu dekkjunum sem voru orðin ónýt, yfir á ísó og keyfti ný.... og hvað haldiði að tvö helv.... negld vetrardekk kosti!?! nítjánþúsund!!! takk fyrir mig pent, semsagt þegar ég er búin að kaupa hin tvö dekkin sem mig vantar þá er ég búin að borga þrjátíuogáttaþúsund fyrir dekkin góðu... og tala nú ekki um sumardekkinn sem ég keyfti í sumar uppá rúmar þrjátíuogtvöþúsund þá hljóðar dekkjakaupim í ár uppá sjötíuþúsund!!! geri aðrir betur... og ég er ekki að tala um að ég hafi keyft dýrustu dekkinn ónei, þessi sem ég keyfti í dag eru með þeim ódýrari, en samt góð dekk (sagði kallinn allavega) .... arg á svona stundum langar bíl ekkert að eiga bíl!!

svo á bossinn minn ammæli á morgun... og mamma hinn (6 okt) og viti menn ég er búin að kaupa ammælisgjöfina fyrir múttu... en ætla ekkert að segja frá því hér... þar sem kellann gæti alveg verið að lesa ;c)

:: J mánudagur, október 04, 2004 [+]
...
:: þriðjudagur, september 21 ::
Jæja... úff alltof margir dagar síðan ég bloggaði!! ekkert þannig að ske hjá mér, veiktist reyndar í um vikutíma, sem var ekki gott :c( en ég er nú búin að jafna mig á því... svo er maður á fullu í skólanum... en ég mætti alveg vera duglegri að læra... en þetta lærist... þá meina ég að læra að læra og læra að vera í skóla... púff það er ekki auðvelt, og ég tek ofan fyrir þeim sem eru í fullu námi... og hvað þá í fullu námi með fullri vinnu!!

Svo er alveg brjálað að gera hjá mér í herbalæfinu... búin að missa 6 kíló og 104 cm... og er bara nokkuð sátt við það... og það er nú bara þó nokkuð að gera hjá mér með viðskiptavinina... en ég hef nú bara gaman af þessu og gott að geta miðlað þessu til annarra :c)

og nú er ég loksins að fara að sjá fyrir endanum á húsaviðgerðum, við erum reyndar ekki alveg búin að klára að mála, það er svona smotterí eftir... en það virðist búið að rigna nánast síðan við komum heim úr reykjavíkurferðinni okkar... og þar af leiðandi getum við ekki klárað :c( já og svo eru hurðarnar komnar á sinn stað og bara eftir að klára fráganginn á þeim... setja gerekt (held að það sé skrifað svona) og hurðahúna á nokkrum stöðum... annars er þetta alveg að koma...

jæja skólabækurnar kalla...

:: J þriðjudagur, september 21, 2004 [+]
...
:: föstudagur, september 10 ::
Jæja... heimskulegaprófiðánetinumánaðarins...

Find out which Friend you are at
<br /><br><a href= :: J föstudagur, september 10, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, september 5 ::
Jæja... Ég var að gera alveg frábæra uppgötvun á fimmtudaginn!! þar sem ég er alltaf með allt á hornum mér varðandi aldurinn minn... þá mér til mikilla ánægju var ég að uppgötva það í bekknum mínum þá er ég næst yngst !!! vá ég var skvo ekkert smá glöð með það :c) ekkert smá egó búúst...

Ég og minn heittelskaði fórum á kvótaballið í gær, ætluðum sko að bæta okkur það upp að hafa ekki mætt síðustu tvö ár... en nei þá mættu bara frekar fáir sko... algjört svindl... en það var samt ekkert leiðinlegt... en veit það næst að þetta er ekkert möst sko... samt soldið svekkjandi að það er verið að halda ball fyrir sjómenn og fólk sem vinnur í kringum þennan iðnað (að sjálfsögðu eru samt allir velkomnir) að svona ofboðslega fáir sjái sér ekki fært að mæta... eiginlega er það bara lélegt, því ekki er nú margt að ske hérna í þessum litla bæ mínum...

annars fór ég í partý hér í bæ og var tja sennilega til að ganga hálfsex í morgun, hefði sennilega verið lengur ef ég hefði ekki fattað það þegar ég var að bíða eftir að komast á salernið... þá allavega skaut sú hugsun í kollinn á mér : æji jóhanna afhverju ferðu bara ekki heim, partýið er ekkert sérstakt (ekki samt leiðinlegt) farðu bara heim. og eftir þessa hugljómun ákvað ég bara að drífa mig heim... sem er mjög merkilegt fyrir mig því ég hugsa alltaf þannig að ef ég færi heim þá gæti ég nú misst af einhverju, og partýljónið ég er þá í partý til hádegis, ef því er að skipta... og þökk sé ákveðinar herbalife vörutegundar sem ég tók inn áður en ég fór að sofa er ég algjörlega laus við þynnku og hausverkjar... sem er nú oft fylgifiskur drykkju...

annars er ég að fara skólann á morgunn og á eftir að lesa einn kafla í heilbrigðisfræði fyrir tímann svo að... adíjos :c)

:: J sunnudagur, september 05, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, september 1 ::
Jæja... Þá er ég byrjuð í skóla !! er í félagsliðabraut við MÍ, og fyrsti tíminn í dag :c) ég varla svaf í nótt fyrir spenningi!! ekki nema það að ég er að fara í skóla sem mér finnst æðislegt líka þá er ég konan sem er óðum að nálgast þrítugsaldurinn að fara í menntaskóla í fyrsta skiptið á ævi minni!! ég var samt með smá hnút í maganum... en mig hlakkaði samt meira til heldur en kviði fyrir... og nú er málið held ég að fara að læra að læra aftur, hef ekki verið í skóla síðan í tíunda bekk... eða nítíuogeitt... vá fyrir tæpum þrettán árum!!

...svo alveg týpískt ég fékk bókalistan núna í vikunni og ætlaði að fara að versla bækurnar í dag, en ónei... skvo ég þarf að versla þrjár bækur sem er ekki mikið en nei allar búnar!! og tvær koma á morgun en sú þriðja kemur eftir tvær vikur!! var ekkert smá svekkt... en er að hugsa um að hringja í einhverja bókaverslunina á reykjavíkursvæðinu og láta bara senda mér þetta... er ekki alveg til í að bíða svona lengi...

en annars er allt gott að frétta... mér gengur vel í herbalife átakinu mín... þyngdist reyndar aðeins í reykjavíkur ferðinni... en það er að nást af... svo að ég er bara á ágætri leið með mín persónulegu markmið :c)

jæja sofa ZZZzzzZZZzzzZZZ

:: J miðvikudagur, september 01, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, ágúst 25 ::
Jæja... Ég er komin heim eftir vikulangt frí sem við eyddum í reykjavíkinni... og hafnarfirði :c) og ég er barasta fegin að vera komin heim, ég var eiginlega búin að fá nóg... af td umferðinni... mér fannst umferðin ekkert smá áreiti, og já ég gerði óformlega könnunn... svona einn af tuttugu gefa stefnuljós útúr hringtorgum... ekkert smá pirrandi...

en við fengum gott verður alla dagana á suðursvæðinu...Ég og systur mínar kíktum í bláa lónið, og vá hvað það er alltaf frábært að koma þangað... sama hvort það er rigning eða sól, en ég fékk skvo glampandi sól núna í þetta skiptið... og bónusinn var að það var enginn doddi með að tuða um hvað þessi drullupollur væri ógeðslegur, og að reyna að draga okkur uppúr, ónei :c)

já og menningarnótt var ágæt, ruv tónleikarnir æðislegir.. þá sérstaklega lokaatriðið með egó... þeir voru frábærir!! flugeldasýningin ógeðslega flott, ég held bara að ég hef aldrei séð svona mikið að fólki.. fyrr um kvöldið kíktum við á Tapas, sem er spánskur veitingastaður, hitti ég þá ekki Kate, hún er rússi og var hér auper fyrir nokkrum árum, en er að vinna á Tapas núna... hún allavega biður að heilsa öllum sem muna eftir henni...



:: J miðvikudagur, ágúst 25, 2004 [+]
...
:: föstudagur, ágúst 13 ::
jæja... nú hef ég ekki tekið heimskulegaprófiðánetinu í mjög langan tíma... en ég verð hreinlega að birta þessa niðurstöðu.... enda er ég steingeit....


Discover your Zodiac Personality
Discover your Zodiac Personality @ Quiz Me


:: J föstudagur, ágúst 13, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, ágúst 11 ::
Jæja... veðrið ídag... omægod!! ég vildi stundum oskað þess að að geta bara lokað í vinnunni hjá mér... bara vegna veðurs :c) en maður getur víst ekki fengið allt...

ég er á herbalifenetfundi núna, er reyndar búin að heyra allt sem er að ske þar, ákvað að blogga í leiðinni, er reyndar ekki búin að missa meira en 5 kg, en það eru komnir 87 cm sem eru farnir!! ekkert smá glöð með það :c)

en annars aftur að veðrinu, eftir vinnu for ég til mömmu á pallinn og vá hvað það var heitt!! ég þurfti að fara inn á korters fresti til að kæla mig, og veðrið á víst að vera svona fram eftir vikunni, en ég er samt mjög ánægð með það... því haustið er að læðast að.... og þá er stutt í veturinn... úff þegar ég minnist á það þá læðist smá sorg í hjartað... ég er nefnilega ekki vetrar manneskja, vildi helst leggjast í hýði á veturnar... en ég ætla nú samt ekki að stytta sumarið... það er ennþá sumar... sko

annars er ég næstum búin að mála húsið okkar... bara ein hlið eftir... gengur eitthvað illa með múverkið... finnst einhvernveginn að það gangi illa að komast að verki... hhmmm er ekkert að skjóta á neinn... neinei allls ekki... neiiiijj... en við verðum að klára þetta á næstu helgi... því nú er skólinn að fara byrja hjá kallinum og þá gefst nú ekki mikill tími...

ég er að fara í sumarfrí í næstu viku.... ohhh ég er ekkert smá glöð yfir að eiga ennþá eftir eina viku í sumarfrí... eitt er víst að við hjónaleysin ætlum í borg óttans... hann í skólann og ég að herbalæfast... en ekki bara eingöngu... ætlum að gera fullt annað líka skvo... er bara ekki búin að ákveða hvað... allavega í bíó... já og svo langar mig í bláa lónið... já og í hveragerði... ég skil ekki afhverju mig langar alltaf að fara í hveragerði... fyrir mér er þessi staður einhver útópía sem allt er æðislega gott, ekki það ég þekki ekki mikið til í hveragerði, afi og amma áttu heima þar tímabundið þegar ég var púki, og ég held að ég hafi komið til þeirra mjög takmarkað, kanski einu sinni eða tvisvar, og ekki lengi í einu... svo fór ég þangað einhvertíman með kallinum mínum... Eden mig langar að fara í eden... og ekki orð um það meir :c)

Reyndar langar mig líka að kíkja á þingvelli... hef aldrei komið þangað... kanski get ég platað mitt fólk í smá ferðalag... æji vonandi... allavega þó það væri ekki meira en í bláalónið...

jæja er ég held að ég sé komin með munnræpu... hhhmmm pikkræpu... og ætla bara að hætta áður en kemur einhver meiri vitleysa...


:: J miðvikudagur, ágúst 11, 2004 [+]
...
:: fimmtudagur, júlí 29 ::
Jæja... hálf skammast mín fyrir að hafa verið svona löt að blogga... en ég hef svosem afsökun... er búin að standa í húsaviðgerðum... og er skvo ekki ennþá búin takk fyrir mig pent!! eldhúsið er að mestu komið, á eftir svona smotterí eins og setja einhverjar höldur og klæðningar... en er svo sannarlega byrjuð að fylla aftur inní skápana, en á samt eftir nokkra kassa

já og svo mála ég að utan um helgina... ef það verður ekki rigning!! ég skil ekkert í því akkurru fólk vill ekki heimsækja mig um helgina?? skilþað bara ekki!! svo ef það er einhver sem er ekkert að fara um helgina og hefur nákvæmlega ekkert betra að gera en að hjálpa mér að mála... þá ertu velkomin :c)

svo er ég líka í fullu í herbalife, og einhvernveginn hefur það undið uppá sig, án þess að vera búin að kynna mig á nokkurn hátt þá er ég samt komin með nokkra kúnna... tala nú svo ekki um að mér gengur sjálfri mjög vel á vörunni, ég byrjaði í maí og er búin að missa 5 kg og 73 cm sem er bara mjög gott og er að sjálfsögðu ánægð með það :c) en ef þú lesandi góður hefur áhuga á vörunni endilega hafðu samband


:: J fimmtudagur, júlí 29, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, júlí 14 ::
Jæja... ætli ég byrja þetta blogg eins og síðustu færslu, ég er sko ekki dauð... bara búið að vera annríki hjá mér... fara til reykjavíkur, eyða fullt fullt að pening, fara í ammæli, ryðja útúr húsinu, fá fullt af gestum, láta gestina mína hjálpa mér að mála og parketleggja, já og henda út eldhúsi... reyna að klambra saman eldhúsinnréttingu... og svo má ég ekki gleyma sæluhelgin með tilheyrandi leiklista og djammstússi... ekki það þáttaka mín var í algjöru lágmarki á frumsýningu... mætti bara á frumsýningu eins og hver annar leikhúsgestur!!

Já sýningarnar gengu ágætlega, nema að það vantaði fleira fólk til að sjá þetta hjá okkur :c( en ég er samt fegin að þetta sé búið, og núna getum við hjónaleysin farið að einbeita okkur að húsaviðgerðamálum... því ég er víst að fara að mála húsið mitt að utan líka, ég held að við málum húsið mosagrænt og drappað, það eru víst allir búnir að fá nóg af fjólubláa litnum sem er á því núna... verður soldið skrítið að geta ekki sagt lengur að ég búi í fjólubláahúsinu...

jæja... fara að gera eitthvað að viti...
:: J miðvikudagur, júlí 14, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, júní 30 ::
Jæja... Nei ég er ekki dauð... en það er víst leikfélagstími... og plús alveg milljón hlutir að gerast hjá mér... svo að þetta blogg mitt virðist sitja á hakanum... en ætla nú smat að reyna að bæta úr því...

er akkúrat núna að vinna leikskránna og það er stund á milli stríða... ég er bara nokkuð snemma íissu... ég á ekki að skila fyrr en á fimmtudag og ég er búin að senda mest allt í prófarakarlestur...alveg heilum sólarhringi fyrr en vanalega... svo er ég að fara suður á fimmtudag eða föstudag... er ekki alveg búin að ákveða hvort... en ég er víst að fara að sækja systur mínar fyrir sælu... og já kaupa eldhúsinnréttingu...

þannig er mál með vexti að ég reyndi í síðustu viku að opna sundlaug í íbúðinni minni... án gríns, í stuttu máli þá flæddi inn til mín í síðustu viku og varð nokkuð tjón af... svo að þegar ákvað var að skipta um gólfefni þá fór snjóbolti af stað og við ákváðum að taka allt í gegn og þar með eldhúsið... en það gerist víst ekki fyrr en eftir sælu svo að... bara að mála húsið að utan fyrir sælu... það er takmarkið...

svo sama dag og flæddi hjá mér þá fékk ég bréfið frá kennó, og ég komst ekki inn... en ég ætla nú ekkert að svekkja mig á því, og er búin að skrá mig í félagsliðanám... en að sjálfsögðu sækji ég um aftur... og aftur og aftur... eða þar til að þetta lið vill taka við mér ;)

jæja leikskráin kallar...
:: J miðvikudagur, júní 30, 2004 [+]
...
:: fimmtudagur, júní 17 ::
Jæja... ég sat áðan á kaffishúsinu hérna á súganda með Ernu... við vorum að vinna aðeins í leikskránni fyrir leikfélagið... eignlega bara að skipuleggja okkur... allavega... einhverra hluta vegna var rifjuð upp sagan af mér og sölumanninum og kórónunni... og ég barasta verð að birta hana aftur hérna... ég lagði það meira segja á mig að finna mynd af kórónunni á netinu, og lagði það meira að segja á mig að birta mynd á blogginu mínu (eitthvað sem ég hef altaf ætlað að læra en aldrei nennt)... en allavega hér er sagan og svo myndin (ekki af mér samt)... og myndin er bara til þess að leggja áherslu á hversu fáranleg ég var ;c)

Jæja... Ómægod!!!!! ég er alveg ótrúleg... það kom sölumaður hérna áðan, sem er svosem ekkert að segja frá... nema allavega... hann var rosalega skrítinn við mig allan tímann, spurði eftir mömmu minni og stuff sagði að ég væri eitthvað svo ungleg... nema ég sagðist vera húsfreyjan á þessu heimili... nema hvað hann var að reyna að selja mér einhverskonar engla... nema hvað... að hann kallaði mig drottningu allan tíma... sem ég var bæðövei ekki að skilja!!! nema mér tókst að losna við hann... fór inní tölvuherbergið aftur og var gera mitt stöff þar... nema svona hálftíma seinna kom kallinn minn og sagði : varstu nokkuð með þessa kórónu þegar þú fórst til dyra??? þá var einhver svona kóróna sem leikfélagið á(svona kóngakóróna!!!), á tölvuborðinu mínu... og fyrr í kvöld setti ég hana á hausinn einhverra hluta vegna... nema að ég var búin að gleyma því... og fór því til dyra með helv... kórónuna á hausnum og fattaði ekkert!!!! en ég er sko búin að hlæja að þessu svona í ca hálftíma... og varð bara að deila því með einhverjum :c) kallinn hefur örugglega haldið að ég væri þroskaheft eða eitthvað ... hehehehehehe




:: J fimmtudagur, júní 17, 2004 [+]
...
:: þriðjudagur, júní 15 ::
Jæja... Ég var að heyra svo svakalega kjaftasögu að ég heinlega verð bara að segja frá henni hér ;c)

Var að heyra að Davíð ætlaði að láta taka af sér tvo fingur...
baugfingurna!!

Og ekki nóg með það...

Davíð er líka hættur að fara út á kvöldin vegna þess að hann er svo hræddur
við norðurljósin!

Og kjaftasagan heldur áfram...

Davíð fer víst líka snemma að sofa svo hann fái ekki bauga!

En ég sel þetta nú ekki dýrara en ég verslaði það.

... var reyndar frekar ódýrt, en samt fyndið, annars er lítið að frétta hjá mér... er að fara í sumarfrí eftir eina og hálfa viku... það er svosem ekkert ákveðið hvað ég ætla að gera í fríinu, fer kanski suður helgina fyrir sæluhelgi, eiginlega er ég nokkuð ákveðin í því að fara þá...


:: J þriðjudagur, júní 15, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, júní 13 ::
Jæja... Ég er að verða svekkt með þetta sumar... í alvörunni það er ekki búið að vera neitt sérstakt veður í maí og svo er júní að svíkja mig líka... arg þoli ekki svona mig langar í sumar og sól, ekki ský og innan við tíu stiga hita!!!

Annars er ég ekki ennþá búin að fá svar frá kennó, er næstum því að fara á límingunum, ég er stressuð yfir því ef ég kemst ekki inn... og ég er mjög stressuð yfir því að komast inn... mig langar í svar... en mérskilst að ég eigi að fá svar fyrir 20 júní... svo skilst mér að það eru svo margir sem sóttu um í skólann að það varð að vísa helmingnum frá, svo ég er ekkert úber bjartsýn...púff þetta verður erfið vika...

og hvað er svo málið með mig, ha? ekki búin að segja frá kaffihúsinu á súganda!! ÓJÁ það er sko búið að opna lítið sætt kaffihús hérna, sem er sko vel virði að kíkja á!! og það er sko hægt að fá næst besta svissmokka á því (besta er á cafe blue í kringlunni) svo eru stólar og borð úti svo það er hægt að njóta veðurblíðunar (þegar henni sýnist að koma) svo að :c)

Já hehe mín fór skvo í klippingu í síðustu viku... hehe eða sko undir rakvélina :c) er næstum krúnrökuð... fyrir utan hanakambinn sem var skilinn eftir, ég er búin að fá ansi skemmtileg viðbrögð við þessu, flestir segja að þetta fari mér bara nokkuð vel... á meðan aðrir líkji mig við trukkalessu ;c) en svona í alvörunnu þá er þetta ekki svo slæmt... en þetta er alveg æðislegt að vera með hárið svona stutt!! ekkert vesen að greiða sér og enginn greiðslufrestur (klútur yfir hárið til þess að fela það að ég nenni ekki að greiða mér) eins og ég er búin að vera með síðan í febrúar...

jæja ég er farin í sturtu...

:: J sunnudagur, júní 13, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, júní 6 ::
Jæja... Þá er næstum kominn sjómannadagur, og einhvað virðist búið að breyta fyrirkomulaginu hérna varðandi þann dag... alltaf var mest öll dagskráinn á sunnudeginum eða á sjómannadeginum sjálfum, það er að segja skemmtannahöldin, dagskráin á höfninni og sjómannaballið var á sunnudegi... en í ár er það á laugardegi... og ég verð bara að segja að ég er mjög sátt við það, þar sem ég er að vinna á mánudögum (eins og flestir) þá hefur ball á sjómannadegi alltaf verið frekar truflandi fyrir mig þar sem ég bý frekar nálægt félagsheimilinu og það hefur verið lítið sofið um nóttina... því fyrir utan ballið þá er fólk ekkert endilega á því að fara heim að sofa eftir ball og þá er fólk trallandi hér um götur... svo ég verða að segja að ég er bara mjög fegin að þessu var breytt... og líka það nú á ég möguleika á því að kíkja á sjómannaball :c) ekki það ég ætla ekki þetta árið...

já svo eru núna um tvö ár síðan ég byrjaði að blogga :c) ég er kanski ekki eins dugleg að blogga eins og ég var í upphafi... en ég hef ennþá jafngaman af því að blogga og er ekkert á leiðinni að fara að hætta...

Svo verð ég nú að nefna það að ég er MJÖG STOLT af forsetanum okkar, hann tryggði sér algjörlega atkvæði mitt í forsetakosningunum með því að neita að skrifa undir fjölmiðlalögin! loksins er einhver sem þorir að segja eitthvað á móti litlafimmárasmástráknumísandkassaleiknum sem kallast forsetisráðherra... satt best að segja finnst mér löngu kominn tími á hann Davíð, hann hefur alltof mikil völd í þessu landi... þá meina ég að hann leyfir sér allmargt af því að fólk er hrætt við hann... mér finnst það mjög ansalegt að ætla setja einhver lög því hann þolir ekki Jón Ásgeir... æji nenni samt ekkert að vera pólitísk núna... svo ég er hætt að tala um þetta (í bili)

og kanski ég hætti að vera í feluleik með draumamálið sem ég talaði hér um í apríl :c) en þannig er mál með vexti að ég var að sækja um fjarnám í kennaraháskóla íslands, ég var að sækja um í þroskaþjálfabraut... ég vildi fyrst vera í feluleik með þetta því ef ég kæmist ekki inn og að allir vissu að ég sótti um... æji mér fannst það eitthvað svo neyðarlegt... en mér finnst það ekkert lengur, þurfti bara að melta þetta aðeins... en ég er svo glöð yfir því að hafa tekið ákvörðun um að gera þetta, ég gerði mitt besta og núna er þetta ekki lengur í mínum höndum, ef ég kemst ekki inn þá só bí itt ég sótti þó allavega um, sem var þrekraun fyrir mig því ég hef alltaf verið með mikla minnimáttarkennd yfir því að hafa aldrei lært neitt! en ef ég kemst inn, þá bara frábært :c) og svona bæðövei þá fæ ég svar í kringum 20. júní... allir krosslegja fingur fyrir mig :c)

... svo kanski næst þá uppljóstra ég öðrum feluleik sem ég er í (sem er þó ekki feluleikur) og Jóhanna NEI ég er ekki ólétt ;c)


:: J sunnudagur, júní 06, 2004 [+]
...
:: mánudagur, maí 31 ::
Jæja... þá er hvítasunnuhelginn að líða... úff ég vildi sko hafa einn dag í viðbót við þessa helgi í fríi!! sko í alvörunni, ég er engan vegin tilbúin að fara að vinna... ekki það að það sé leiðinlegt í vinnunni, alls ekki... langar bara í einn frídag sem ég er ekki að gera neitt... helgin var nánast fullskipulögð hjá mér... á laugardag fór ég að versla og tók aukavakt í vinnunni, á sunnudag bakaði ég fyrir skírn, fór í mat á ísó og fór svo í útskriftarpartý á suðureyri, svo í dag setti ég á tvær kökur og brunaði svo á núp í skírn...

en ég verð að segja að það er alveg rábært að koma á núp, ég hef ekki almennilega komið þangað síðan ég var í 10. bekk, en þá var ég þar í heilan vetur því 10.bekkur var ekki kenndur í grunnskólanum hér... og ég verð eiginlega að segja að þetta ár þar hafi verið eitt mitt besta ár... að sjálfsögðu var ekkert lífið dans á rósum þar, en svona í minningunni þá var allt æðislegt þarna :c) ég fékk í dag að kíkja á gömlu herbergin mín (ekki gat ég enst í einu herbergi heilan vetur, svo maður var alltaf að skipta) en ég var í þremur herbergjum, en einu bara eftir áramót... ohhh þetta var svo skemmtilegur tími... en ég man líka hvað það var alltaf gott samt að komast heim... því að sjálfsögu er heima bezt...

já og svo er sumarið svo sannarlega komið !! þessi helgi hefur verið algjör draumur veðurlega séð, hiti 16-20 stig ALVEG SATT :c) en því miður hef ég ekki komist mikið á pallinn hjá mömmu og pabba, en ég á svo sannarlega eftir að bæta úr því... sértsaklega þegar ég þykist ekki ætla að eyða miklum tíma í leikfélagið mitt þetta árið... ég ætla bara að aðstoða við leikskránna og sminka... já og vera fjölmiðlafulltrúi, það er að segja ef framkvæmdarstjórinn sér ekki um það... ég er meira að segja að hugsa um að láta mig hverfa úr bænum þegar mesti álagstíminn er, fara suður eða eitthvað og koma svo í bæinn um sæluhelgina... það væri frábært ef ég mundi gera það ;c) en maður sér samt til...


:: J mánudagur, maí 31, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, maí 26 ::
Jæja... já það var eins og við manninn mælt!! ég óska eftir sólbruna... og sólbruna ég fæ!! SUMARIÐ loksins komið, og ég komst á pallinn til mömmu og pabba... og ég gæti alveg trúað því að þegar líður á helgina... svona sennilega sunnudag eða á mánudag þá er ég alveg búin að fá nóg af sól... NEI ég bara segi svona... ég er ekkert smá sátt og viti menn pirringur er barasta horfinn...

ég fékk mann til þess að spá í bolla fyrir mig í gær... og fékk ekki góðann spádóm :c( en svona þegar ég fer að hugsa málið þá hef ég grun um að spádómurinn hafi ekki verið um mig... heldur fólk í kringum mig, allavega passar hann svo vel við nokkra í kringum mig, þó sérstaklega eina manneskju!! Ég hef grun um ákveðna hluti, en þori ekki fyrir mitt litla líf að spurja, enda þegar á botninn er hvolft þá kemur mér það í raun ekki við... samt finnst mér erfitt að horfa uppá þegar öðrum líður illa... og kanski það eina sem ég get gert að vera vinur...

en Garpurinn er ekkert smá glaður yfir því að það sé komið sumar, og ég hef trú á að allt batni með hækkandi sól :c)


:: J miðvikudagur, maí 26, 2004 [+]
...
:: þriðjudagur, maí 25 ::
Jæja... kallinn minn er á pixies tónleikunum akkúrat núna *grát* mig langaði svo að fara!! en akkúrat núna er ég á pixies tónleikum í gegnum gemsann minn... þessi elska hringdi þegar tónleikarnir byrjuðu og ég fékk að heyra fyrsta lagið... já og ég heyrði líka kallinn minn syngja með... og mér heyrðist ég heyra í Elvari Atla líka... vona að þeir skemmti sér vel!! er bara með þeim í anda!! en langaði samt svooooo að fara!!!

Annars er ég búin að vera pirruð, og það virðist ekkert vera að lagast... ég er pirruð út í allt og alla... er ekki alveg að skilja hvað er í gangi.. æji ég vona samt að þetta fari að ganga yfir... það er svosem ekkert hægt að setja puttann á það hvað er að pirra mig... mér finnst bara ekkert vera að ganga upp eins og ég vildi að hlutirnir væru að ganga... og mér finnst þetta vera um allt sem ég er að vesenast í akkúrat þessa stundina... já og svo vantar mig SÓL í alvörunni talað, mig langar að komast útá pall til mömmu og pabba og baða mig í sól... það liggur við að mig er farið að dauðlanga að sólbrenna, en þetta er vonandi að koma... allavega er farið að hlýna... var 14°stiga hiti í dag (skv mælinum í bílnum mínum)... ég er eignlega 100% viss um að brúnin lyftist þegar sólin kemur...

Já svo er tæpur mánuður þangað til að ég fer í sumarfrí :c) hlakkar ekkert smá til... ekki það er ég er ekki búin að plana neitt... og kemst sennilega lítið sem ekkert, allavega ef ég fer eitthvað þá fer ég sennilega ein, þar sem kallinn minn er í leiklistarstússeríi... já og svo fæ ég eina viku einhvertíman í ágúst, þá ætlum við hjónaleysin allavega suður...


:: J þriðjudagur, maí 25, 2004 [+]
...
:: laugardagur, maí 22 ::
Jæja... Gaman að heyra Finnbogi...huh nei V :c)

Ég er bara í góðum gír núna, er að gera mig til fyrir árshátíð, er búin að plokka mig og lita, og á ég var búin að gleyma hvað það er sárt að plokka... en ég hafði það af og er núna eins og grimmhildur grámann... kanski ekki alveg svo slæm... fyrr í mánuðinum fjárfesti ég í hreint frábærri húðvöru frá Herbalife og ómægod hvað húðin mín er góð núna, hef ekki upplifað andlitið á mér svona í mörgmörg ár! æðislegt að geta dekrað svona við sig :c) og já næstum allir exemblettir í andlitinu er farnir, gott sem...

Ég fór í starfsmannpartý á langamanga á miðvikudaginn, og vá hvað mín var orðin drukkin, ég fékk svo að kenna á því á fimmtudaginn, enda fór sá dagur alveg í þynnku... en miðað við mig þá kom ég snemma heim... kom heim um hálf fimm (frá ísó fjögur) og fyrir mig er það algjört kraftaverk... því ég get verið þaulsetin þegar ég byrja... en allavega það var mjög gaman í partýinu :c)

En sem betur fer ætla ég ekki að drekka í kvöld, enda fékk ég ekki dræver, og ekki tími ég að taka taxa!! það er sko nógu andsk#$% dýrt að taka taxa á suðureyri og það bara ein... og þar sem kallinn minn er hinum megin á landinu með bílinn MINN, þá ætlar bróðir minn að vera svo góður að lána mér sinn bíl... ekki það þessar elskur sem ég vinn eru margar búnar að bjóða mér að sækja mig (sem mér þykir rosalega vænt um) en þar sem ég nenni ekki að drekka, og hvað þá að gista annarstaðar en í mínu rúmi þá hentar brósa bíll mér bara vel :c)


:: J laugardagur, maí 22, 2004 [+]
...
:: þriðjudagur, maí 18 ::
Jæja... Ég er svo fjúkandi ill núna að það hálfa væri sko alveg nóg!!! ætla ekkert að fara frekar í það nema að aldrei, aldrei aldrei aftur ætla ég að ginnast að kosningarloforðum, og aldrei, aldrei aldrei ætla ég að kjósa einn ákveðinn stjórnmálaflokk aftur í bæjarkosningum hérna!!! og ég stend við það!!

annars er búið að vera ansi spennandi í vinnunni hjá mér síðustu daga, við erum búnar að standa í flutningum og allt nýtt og spennandi :c)

svo er bara mikið að gera í djamminu hjá mér þessa vikuna, barasta tvö djömm!! já og svo er ég enn og aftur að gerast grasekkja, því kallinn er að fara í Svarfaðadalinn á bandalagsþing, svo kemur hann heim á sunnudaginn, og fer svo aftur á þriðjudag á pixiestónleikana... og ég kemst ekki :c( hvað er málið með að halda tónleika í miðri viku!! arg

segji þetta gott í bili... vona að ég verði ekki svona örg næst þegar ég blogga...


:: J þriðjudagur, maí 18, 2004 [+]
...
:: fimmtudagur, maí 13 ::
jæja... þá er það heimskulegaprófiðánetinudagsins... eð eitthvað :c)


chef jpeg
You are the the Swedish Chef.
You are a talented individual, nobody understands
you. Perhaps it's because you talk funny.

FAVORITE EXPRESSION:
"Brk! Brk! Brk!"
HOBBIES:
Kokin' der yummee-yummers

FAVORITE MOVIE:
"Wild Strawberries...and Creme"

LAST BOOK READ:
"Der Swedish Chef Kokin' Bokin'"

QUOTE:
"Vergoofin der flicke stoobin mit der brk-brk
yubetcha!"


What Muppet are you?
brought to you by Quizilla


ég vildi samt veri kermitt!!!
:: J fimmtudagur, maí 13, 2004 [+]
...
Jæja... það er víst orðið rosalega langt síðan ég bloggaði síðast... svo að... það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá mér... og verður í allan maí!! ég kemst ekki einu sinn á Pixies :c(

Ég tók þátt í flugslysaæfingunni síðstu helgi, ég var að sminka og að leika aðstandanda sjúklings... og það var alveg ógeðslega gaman... við skulum bara segja það að ég hafi verið dregin út af sjúkrahúsinu á Ísafirði, af lögreglunni... og af sminkinu að segja þá var hringt í mig frá þeim sem stóðu af æfingunni og var það samróma álit að sminkið núna hafi verið það flottasta sem hefur sést á svona æfingum...ekkert smá glöð með það...

Svo erum við að flytja í vinnunni og það er og verður alveg brjálað að gera hjá mér á næstunni... já og svo er staffapartý, svo og árshátíð hjá okkur allt í næstu viku!! en mig hlakkar bara til...


:: J fimmtudagur, maí 13, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, maí 5 ::
Jæja... Ég er ógeðslega svekkt yfir þessu veðri hérna, það lítur sko alls ekki fyrir að vera maí... það er allt hvítt úti... ég er að verða biluð á þessu!!

Annars er ekki mikið að frétta hjá mér, reyndar verður mikið að gera hjá mér í maí... reyndar mjög mikið... og barasta eitthvað að gera hjá mér td allar helgar í maí... stundum pirrast ég á því að þegar allt lendir á sama mánuðinum... það eru flugslysaæfing, flutningar í vinnunni, árshátíð, afmæli, skírn, vinnudjamm, man ekki meira í augnablikinu... jæja besta að fara að koma sér í vinnu...
:: J miðvikudagur, maí 05, 2004 [+]
...
:: þriðjudagur, apríl 27 ::
jæja... Útvarp vestfirðir góðann dag :c) neij ég bara segji svona...

Ég kíkti á langa manga um helgina, sem sagt í "fjarvinnslu" partý, og svei mér þá, það var bara alveg rosalega gaman... og það er orðið mjög langt síðan ég hef hlegið svona mikið... úff ég var komin með í magann...

...púff svo í gær var sminkæfing fyrir flugslysaæfinguna sem ég er að fara að taka þátt í... og ómægod... ég þoli ekki þegar ég mæti einhverstaðar og einhver á að sjá um eitthvað, og allt er í algjörlega skipulagsleysi... æfing sem gat tekið ca 1 1/2 -2 klst tók um 3 klst, bara af því að námskeiðshaldari þótti svo gaman að tala um annað en akkúrat sem átti að tala um... mín var orðin mjög pirruð!!! ekki það ég tók þátt þegar þessi flugslysaæfing var síðast og þá var skipulagið mun betra... en ég ætti svosem ekkert að vera að pirra mig á þessu, því ég veit að þetta verður bara gaman...

Já og svo með draumamálin sem ég talaði um fyrir nokkru síðan... nú eru þau mál úr mínum höndum, og ekkert sem er á mínu valdi ennþá... semsagt ég er búin að gera það sem ég þurfti að gera... svo núna er bara að bíða og sjá....
:: J þriðjudagur, apríl 27, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, apríl 21 ::
Jæja... ég held að ég sé með slæmt tannlæknakarma!!! vildi bara koma því á framfæri

Annars stimlaði vorið sig inn í dag, allavega þegar ég vaknaði í morgun var glampandi sól, fuglar sungu og mér leið mjög vel, og það er alveg óneitanlegt að sumarið er á næstu grösum... en leyfum samt vorinu að vera aðeins áfram... uppáhaldsárstíðin mín er vorið... svo að ég eiginlega syngjandi glöð núna :c) og ekki spillir fyrir að sumardagurinn fyrsti er á morgun og ég er í fríi... ekki það að ég ætli að gera nokkurn skapaðann hlut, ætlaði reyndar að grilla, en komst að því í morgun að kallinn minn er að fara á sjó í nótt svo að ég nenni ekki að grilla fyrir mig eina...

annars er barasta lítið að frétta af mér....

:: J miðvikudagur, apríl 21, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, apríl 14 ::
Jæja... Þá eru páskarnir komnir... og farnir... ég skrapp suður fyrir páska, stoppaði reyndar mjög stutt, hitti engan... heimsótti engan... thja fyrir utan systur mínar... annars fór ég bara suður til þess að koma vestur aftur...

Páskarnir voru næstum því ömulegir... fyrir utan það að ég var með gesti sem var bara nokkuð skemmtilegt, þá náði ég mér í flensu í borg óttans (eins og ég segi alltaf það er ekkert gott við Reykjavík) og ég lá eignlega í flesnu alla páskana og er ennþá að jafna mig.

Reyndar ákvað ég að skreppa á ball, hér á Suðureyri, en ballið var BARA ömurlegt, einhverjum snillingnum datt það í hug að hafa ekki kaffisalinn opinn því það væri miklu skemmtilegra ef allir væru saman að dansa!! WELL það dansa ekki allir og það er til fólk sem fer á ball til að dansa ekki, heldur til að hitta fólk og spjalla... og það er einmitt hægt að spjalla inní dansisal ójá... ég var næstum orðin heyrnalaus og heyrði ekkert í fólkinu... nema hvað ég hótaði að fara, og reyndar veit um slatta af fólki sem fór afþví að kaffisalurinn var ekki opinn, en vinkona mín reddaði því að salurinn yrði opnaður... og ekki leið langur tími þar til kaffisalurinn fylltist af spjallþyrstu fólki :c)

Ég verð aðeins að halda áfram með þetta ball, ég fer sjaldnast á ball útaf hljómsveitinni, ég get þá alveg eins farið á tónleika, en allavega, ballið var auglýst sem eitísball... en hljómsveitin var ekki alveg að fatta það, spilaði bara tónlist frá 1950-1975 (óskalög sjómanna) og það var ekki fyrr en lókal strákar hér sem eru í bandi ákváðu að spila tvö lög í hléinu sem hljómsveitin tók við sér og spiluðu fjörug lög... okey ég skal viðurkenna að fyrri hluti ballsins var ömurlegur, en sá seinni var alveg bara ágætur... okeyokey

jæja best að koma sér í rúmið... Ása og Lilja takk fyrir skilaboðin í gestabókinni... :c)
:: J miðvikudagur, apríl 14, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, mars 28 ::
Jæja... margt og mikið gerst síðan ég bloggaði síðast, er búin að vera að vinna í draumamálinu alveg heilmikið og stefni að klára fyrir/eftir páska eða svona í kringum það leyti...

Já svo á föstudaginn kvaddi ég litla rauð :~( en samt ekki svo með miklum tárum eða þannig... ég er búin að eiga þennan bíl síðan ég fékk bílpróf, og við höfum brallað alveg heillmikið saman farið hingað og þangað... og meira að segja hringferð um landið... en ekki er allt svo með illu að ey boði gott... ég fékk mér aðra toyota, meira að segja corolla.. bara með lengra skotti, blá og 4x4 og töluvert nýrri... og ég er heldur betur búin að prófa gripinn... er búin að keyra um 350 km síðan kl 9 á föstudagskvöld, sem er alveg bara ágætt... hjálpaði reyndar "dótturinni" að flytja á ísó... en ég er barasta sátt við nýja bílinn minn... en hvað það er skrítið að sjá annað fólk keyra gamla bílinn minn...

annars er unnar farinn aftur suður og kemur rétt fyrir næstu helgi... og ég er að spá í að kíkja suður rétt fyrir páska... það er að segja ef ég fæ frí...
:: J sunnudagur, mars 28, 2004 [+]
...
:: föstudagur, mars 19 ::
Jæja... okei ég held að kallinn minn hafi smitað mig eitthvað af nördinu sínu... ég tók þetta asnalegaprófánetinu... um startrek





:: J föstudagur, mars 19, 2004 [+]
...
Jæja... Þá eru draumamálin komin á skrið... ég ákvað að láta til skara skríða og byrja að vinna í þessu... svo að, eftir helgi þarf ég að tala við fólk sem gæti hjálpað mér... og púfffff ég held að það verði erfiðast af þessu... en ef ég ætla að láta verða af þessu þá bara verð ég, og punktur hingað og ekki lengra... en ég ætla ekki að sinni að láta uppi hvað þetta er... en geri það samt um síðir... en skemmtilegasta við þetta allt er að ef þetta gengur ekki upp hjá mér, þá er ég með nokkuð pottþétt plan í bakhöndinni :c)

annars fékk ég símhringingu frá kallinum mínum í gær... hæ viltu sækja mig... og hvað ég var glöð að unnar minn er kominn heim :c) að vísu vakti hann í alla nótt á meðan ég svaf... fórum svo í vinnu í morgun... og hann er búin að sofa síðan við komum heim... kallgreyjið... hann var víst búin að vaka í meira en sólahring... svo að hann var þreyttur... en sælan mun ekki vara lengi... hann fer suður næstu helgi...


:: J föstudagur, mars 19, 2004 [+]
...
:: miðvikudagur, mars 17 ::
Jæja... rosalega er það skrýtið þegar maður dreymir skrýtna drauma!!! mig er búið að dreyma tvisvar með svona cirka þriggja mánaða millibili... tjha ég skal bara orða það þannig spark í rassinn drauma... ég á mér einn leyndan draum, sem mig langar að láta rætast... en eignlega þori ég ekki... en ætla samt að framkvæma einhvertímann... ég var að spá mikið í þessu í haust... en ákvað að bíða með það allavega í ár og sjá til... nema fyrir jól þá dreymdi mig ólíklegustu menneskju fyrir mig persónulega (en í heild tengist þessi persóna á óbeinan hátt þessu, því hún er búin að fara í gegnum þetta sem mig langar að gera) allavega í fyrri draumnum þá hvatti hún mig áfram til þess að gera þetta og að hún skildi hjálpa mér, sem á ákveðinn hátt í alvörunni hún getur... nema hvað ég ákvað eins og áður sagði að fresta þessu aðeins... nema hvað í nótt þá dreymir mig þessa konu aftur, þá var hún að spurja mig hvort ég væri byrjuð á þessu, og hún var mjög áköf, drífðu þig að þessu, ég skal hjálpa þér eins og ég lofaði!! úff og núna er ég skíthrædd, ég trúi á drauma og ég hef grun um að það sé verið að benda mér að drífa mig að gera eitthvað í málunum áður en það verður of seint... þarf að pæla aðeins betur samt í þessu...
:: J miðvikudagur, mars 17, 2004 [+]
...
:: mánudagur, mars 15 ::
Jæja... ég bara varð að segja frá því!! ég fór í sólbað í dag!! já það er 15 marz og ég fór í sólbað.... reyndar bara á stuttermabolnum... en mér er sko alvegsama!!

en allavega þá fann ég einhverstaðar svona asnalegtprófánetinu... og það snýst um hvaða frægu manneskju ég ætti eftir að giftast... og ekki slæm útkoma það :c)


You will marry Johnny depp. He has a mind of his
own and chooses movies mecause he likes the
idea, not to make money or become a hearthrob.
He will always respect you and stand up for
you. Congrats!!!


Which male celebrity are you going to marry?
brought to you by Quizilla

:: J mánudagur, mars 15, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, mars 14 ::
Jæja... markmiði síðasta sunnudags náðist!! og ég hef ekki farið í pizzaleikinn síðan á laugardag í síðustu viku :c) og þess í stað er ég farin að kunna á sjónvarpsdagsránna aftur...

Annars fór kallinn min á sjó síðasta þriðjudag, og það verður nú að viðurkennast að ég sakna hans og hlakka til þegar hann kemur í land... en hann fer suður í skólann eiginlega mjög fljótlega eftir að hann kemur í land... svo að ég hitti hann kanski almennilega um páskanna... það fer nú reyndar eftir hvernær hann kemur í land...

Svo kíkti ég með Tinnu í nýja húsið hennar á ísó (sem ég er bæðövei ekki ánægð með hana að svíkja lit og flytjast þangað) og það var bara að verða mjög fínt hjá þeim, og mér skildist að þau flytji bara á næstu dögum... jæja en eftir að við skoðuðum húsið ákváðum við aðeins og kíkja á kaffihús... og ég var ekkert smá svekkt... ég drekk alls ekki kaffi, en fæ mér stundum svissmokka... og ætlaði sko að láta Tinnu falla fyrir þessu... en ónei þetta var eiginlega bara það versta svissmokka sem ég hef smakkað.... mmm mig langar ekkert smá að fara á bláa kaffihúsið í kringlunni, þar er til ógeðslega gott svissmokka...


:: J sunnudagur, mars 14, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, mars 7 ::
Jæja... Ég er búin að vera í einhverri lægð síðustu vikurnar, og hef hreinlega ekki nennt neinu... thja nema að reka pizzastað í tölvunni minni... en markmið dagsins er að fara ekkert í pizzaleikinn í dag, því þetta er tímaþjófur... og tala nú ekki um að mig langar stöðugt í pizzu þessa dagana... og ég þakka eiginlega fyrir það að pizzur er dýrar og það er ekki hægt að fá pizzu hérna á þessum útnára nema um helgar...

Ég horfði á Bruce Almighty í gær, og mér fannst hún alveg æðisleg :c) Jim Carrey klikkar ekki... og ég horfði líka nýlega á Sjóræningja Karabíahafsins nýlega... og ég varð bara ástafangin, Jonny Deep og gaurinn sem lék álfin í hringadróttinssögu... hhmmm namminamm :c) en myndin sjálf er að sjálfsögðu frábær... þetta er svo típýskt, myndir sem heilla mig alls ekki í kynningu og ég neita helst að horfa á eru yfirleitt bestu myndirnar... ætti að hafa það í huga næst þegar mig langar alls ekki að sjá mynd... eða þá bara að gera eins og ég alltaf horfi á þær löngulöngu seinna og heillast ein í friði... eða eitthvað :c)

Annars eins og ég sagði í upphafi þá er ég búin að vera í lægð síðustu daga, og það er nákvæmlega ekkert að ske í kringum mig þessar vikurnar... en vonandi lagast þetta með hækkandi sól...
:: J sunnudagur, mars 07, 2004 [+]
...
:: sunnudagur, febrúar 29 ::
Jæja... er ennþá alveg á fullu að reka pizzastað í frítíma mínum... annars er eiginlega ekkert að frétta hjá mér... fór í föndurklúbb á föstudag... og það var bara ágætt, við vorum meira að segja allar duglegar að gera eitthvað :c)

ég fékk sent til mín svona spurningarlista til mín, frá nokkrum.. ákvað að svar og senda svo áfram... og birti hann hér :c)

1. Hvað er klukkan? 17:18
2. Hvaða nafn er á fæðinarvottorðinu þínu? Jóhanna Ólafsdóttir
3. Hvað ertu kölluð/kallaður? Jóhanna
4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Það voru engin kerti, en hefðu þau verið hefði verið hellingur af kertavaxi á kökunni
5. Afmælisdagur: 24 Des
6. Gæludýr: Garpur og Gimli, kisurnar mínar
7.Hár: sauðaliturinn
8. Göt (önnur en náttúruleg ;): í eyrunum
9. Fæðingarstaður:Bolungarvík (uss ekki segja neinum það)
10. Hvað býrðu? Á Suðureyri
11. Uppáhalds matur: Það fer eftir hvernig stuði ég er í, núna pizza
12. Hefur þú komið til Afríku? Nei
13. Hefur þú lent í bílslysi? bílslysi nei, árekstri já
14. Gulrót eða beikon bitar? Beikon
15. Uppáhalds vikudagur: Föstudagur
16. Uppáhalds veitingastaður: Thaicoon
17. Uppáhalds blóm: Rósir
18. Hvað íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? hhmmm Íþróttir?
19. Uppáhalds drykkur: Egils malt og appelsín
20. Hvaða ís finnst þér bestur? Ís
21. Disney eða Warner brothers? Það fer bara eftir myndinni
22. Uppáhalds skyndibitastaður: Dominos, sem er því miður ekki á vestfjörðum :c(
23. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litin? Parket
24. Hvað féllstu oft á ökuprófinu? Neita að svara!!
25. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst (áður en þú fékkst þennan):
Æji það var eitthvað helvítis Núskin spam
26. Í hvaða búð mundir þú velja að botna heimildina á kredit kortinu? Húsasmiðjunni
27. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? er alveg húkkt á tölvuleik sem snýst um að reka Pizzustaði :c)
28. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Og hvenær á svo að fara að koma með börn
29. Hvenær ferðu að sofa?það er nú það, virkir dagar um kl 23, helgar frá 01-06
30. Hver verður fyrstur til að svara þér þessum pósti? Ekki alveg viss
31. Hver af þeim sem þú sendir þennan póst er líklegastur til að svara
ekki? Unnar (hann þolir ekki svona spam) Doddi og Ása (búin að senda mér)
32. Uppáhalds sjónvarpsþáttur: FRIENDS og íslensla ædolið
33. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Í gær á pizza 67, með Unnari, Írisi og Heiðari
34. Ford or Chevy: Alveg sama, vill bara Toyota
35. Hvað varstu lengi að klára að svara þessum pósti? ca 12 mín

Sendið þetta áfram... en ekki forwarda þessu.. heldur copy skilaboðið og
skrifið nýtt.. Munið að skrifa heiðarlega og svarið með ykkar orðum..
þannig lærið þið hluti um náunga ykkar sem þið vissuð aldrei... og ekki
gleyma að senda aftur til þess sem sendi ykkur þetta! Njótið :)

:: J sunnudagur, febrúar 29, 2004 [+]
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?